11.12.2009 11:21
Jólaglugginn opnaður í Kjörís

Í morgunn var opnaður 11. jólaglugginn í Hveragerði. Nutum við aðstoðar frá nemendum 2. bekkjar H í Grunnskólanum og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.
Þemað í okkar glugga er snjókarl og höfðum við hugsað okkur að búa til alvöru snjókarl en veðráttan hefur ekki boðið upp á það síðustu daga þannig að það varð að grípa til áþreifanlegri ráða. Árni Sveinsson sá um smíðina og þær Elísabet Einarsdóttir og Lena Poulsen sáu skreytingarvinnuna. Við þökkum krökkunum úr 2-H kærlega fyrir komuna og sönginn og vonum að glugginn okkar gleðji bæjarbúa nú á aðventunni.