Heitar íssósar
Kjörís hefur sett á markað tvær tegundir af íssósum, súkkulaði og karamellu, sem hægt er að hita í örbylgjuofni. Sósurnar eru sérstaklega gómsætar og bragðgóðar og eiga án efa eftir að höfða til margra nú yfir hátíðirnar. Sósurnar koma í 320 ml. flöskum og er lítið mál að stinga flöskunni beint í örbylgjuofninn, gott að opna tappann (lyfta upp) og hita í 10-20 sekúndur. Athugið að styrkur örbylgjuofna er misjafn og fylgist því vel með í byrjun. Gott er að byrja í stutta stund í einu og bæta frekar við tímann ef þurfa þykir.
Sósuna má endurhita.
Prenta
Senda frétt
Deila á Twitter
Deila á Facebook
Til baka