Nánar
Mjúkís ársins 2010 gríðarlega vel tekið
![]() |
||||
|
||||
Rétt í þessu lauk kynningu á Mjúkís ársins 2010 í Fjarðakaupum í Hafnarfirði. Það var við hæfi að kynna Mjúkís ársins í Fjarðarkaupum því eins og alþjóð veit hlutu þeir Fjarðarkaupsfeðgar nafnbótina "Menn ársins 2009" í viðskiptalífinu.
Gríðarlegur fjöldi kom og bragðaði á ísnum og heyrðist ekki ein einasta gagnrýnisrödd heldur bað fólk bara um meira sem var auðfengið því allir viðskiptavinir fengu einn líter af ís með sér heim.
Við viljum þakka starfsfólki Fjarðarkaupa sem og Hafnfirðingum öllum fyrir frábærar mótttökur.
Á myndinni er hún Sæbjörg sem var fyrst til að smakka og á minni myndinni eru Jón Ingi og Guðrún frá Kjörís ásamt Sveini Sigurbergssyni "Manni ársins" frá Fjarðarkaupum.
Prenta
Senda frétt
Deila á Twitter
Deila á Facebook


