Sérskreyttar tertur




Vegna mikils álags á tertuskreytingardeildina er rétt að árétta að ALLAR sérskreyttar tertur þarf að panta með minnst 2 vikna fyrirvara!
Á þetta við meðan fermingar standa yfir.
Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Sérskreyttu ísterturnar eru hjúpaðar marsipani, skreyttar marsipanblómum og þeim texta sem óskað er eftir. Alla jafna er konfektís í tertunum en hægt er að velja vanillu-, jarðaberja- og súkkulaðiís ef pöntun kemur með góðum fyrirvara. Í 20 manna barnatertum er vanilluís nema annars sé óskað. Brúðar- og fermingartertur þarf að panta með tveggja vikna fyrirvara miðað við afhendingardag. Pantanir á afmælistertum þurfa að berast fyrir hádegi á þriðjudögum.

Sú breyting hefur verið gerð að þar sem óskað er eftir merkjum íþróttafélaga að þá eru þau prentuð á pappír og plöstuð.

Athugið: Afhendingartími er lengri fyrir landsbyggðina en höfuðborgarsvæðið. Fyrir tertur út á land er gott að gera ráð fyrir 3.-4. vikna afgreiðslutíma en tveggja vikna fyrir höfuðborgarsvæðið og Suðurland. Ef fólk vill fá tertu afhenta til dæmis á Húsavík verður að taka það fram í athugasemdadálki og mun þá sölumaður hafa samband varðandi afhendingu.

Athugið: Tertur verður að greiða við pöntun. Ógreiddar tertur eru ekki framleiddar. Ef greiðsla dregst getum við ekki ábyrgst afhendingartímann.


Smelltu hér til að panta skírnar-, fermingar-, útskriftar- eða brúðkaupstertu eða tertu fyrir önnur tækifæri.

Smelltu hér til að panta barnatertu.

Hægt er að greiða með kreditkorti eða millifærslu. Eftir að pöntun hefur verið gerð mun sölumaður Kjörís hafa samband varðandi greiðslu og afhendingu.

Þú getur skoðað myndir af ýmsum ístertum sem við höfum gert í gegnum árin með því að smella á viðkomandi flokk (barnatertur, skírnartertur, brúðartertur, ýmsar tertur) hér fyrir ofan.

Verð:

 20 manna kringlótt, barnaterta  7.465,-
 20 manna kringlótt sérskreytt terta  7.965,-
 40 manna ferhyrnd  12.020,-
 60 manna aflöng  17.680,-
 Styttur (stúdents, skírnar, eða barna).  800,-

Innifalið í þessu verði eru tertan og öll skreyting, þ.e. oblátumynd, blóm, marsipan og áletrun.  Styttur eru ekki innifaldar í verði.

Ath: Vegna ofnæmis athugið að í marengsmulningi sem er í konfektísnum eru eggjahvítur og í marsípani eru möndlur.

Kassastærðir:
20 og 40 manna    45 x 45 x 20 cm.
60 manna    45 x 60 x 20 cm.

Hér má sjá nánari upplýsingar í PDF skjali.