Fara í efni

Sagan

Fjölskyldufyrirtæki frá upphafi

Kjörís hóf starfsemi 31. mars 1969 í Hveragerði. Stofnendur fyrirtækisins voru Gylfi og Bragi Hinrikssynir ásamt Hafsteini, Guðmundi og Sigfúsi Kristinssonum. Frumkvöðlar að stofnun Kjörís voru Hafsteinn, mjólkurtæknifræðingur, og Gylfi, véltæknifræðingur. Hafsteinn hafði starfað hjá MBF, Búnaðarsambandi Íslands og Osta og smjörsölunni áður en hann stofnaði  Ostagerðina hf í Hveragerði 1966 sem hann rak í 2 ár. Gylfi rak heildsölu í Reykjavík, G.Hinriksson hf., hann hafði ásamt öðrum komið að rekstri Dairy Queen ísgerðarinnar sem var fyrsta ísgerð landsins. Við upphaf framleiðslu Kjöríss kom til aðstoðar, Gunnar Sauer, eigandi Himmerlands is í Aars í Danmörku.  

Uppruni íss

Saga ísgerðar nær aftur til fjórðu aldar fyrir Krist þegar Alexander mikli lá veikur með hita. Læknir hans brá á það ráð að blanda ís saman við safa og ávexti og gefa Alexander til þess að reyna að ná hitanum niður. Upp frá því fór Alexander að krefjast þess að fá drykki sína borna fram með klaka en sækja þurfti klakann um langan veg til fjalla. Saga ís er slitrótt og til eru ennþá eldri sögur af því er klaka var blandað saman við safa.

Ísinn sjálfur þróaðist meira löngu síðar þar sem farið var að gera tilraunir með að blanda ís, ávaxtasafa og mjólk saman. Á svipuðum tíma tók frystitækni stórum framförum í Bandaríkjunum, sem var nauðsynleg forsenda þess að ísinn eins og við þekkjum hann í dag varð til. Þróun frystitækni hófst í byrjun nítjándu aldar en fyrsta ísvélin kom á markað 1851 í Baltimore í Bandaríkjunum. Í kringum aldamótin 1900 tók ísframleiðsla miklum framförum í kjölfar þess að Ítölum fjölgaði mikið í  Bandaríkjunum, sem leiddi jafnframt til þess að fjölbreytni ísframleiðslu jókst gífurlega. Ís varð almenn söluvara í Bandaríkjunum upp úr 1930 og kom tæknin ekki til Íslands fyrr en um tveimur áratugum síðar.

Fjölbreytni

Framleiðslutegundir Kjöríss voru í upphafi núggat, súkkulaði og vanillu pakkaís ásamt frostpinnum en fljótlega bættust við vörur eins og íspinnar, toppar, boltaís og ístertur. Í dag er Kjörís í samstarfi við ýmsa aðila um framleiðlsu og sölu á fjölbreyttum tegundum íss. Framleiðir fyrir önnur fyrirtæki auk þess að flytja inn ís frá öðrum löndum. Kjörís selur t.d. Gulliver íspinnana auk hinna vinsælu Mars, Snickers og Bounty ísa. Það má segja að Íslendingar séu mikil ísþjóð en Íslendingar borða ís allt árið um kring. Kjörís bíður upp á mikla fjölbreyttni í ís, og stuðningsvörum íss  en það er hægt að fá sykurlausan ís, laktósafrían ís og veganís hjá Kjörís. Kjörís kemur til móts við neytendur sína og er engin furða að Kjörísinn hafi verið í uppáhaldi hjá fólki til margra ára.

Vöxtur Kjöríss

Vinsældirnar hafa sýnt sig í hversu mikið fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun þess, starfsemin byrjaði í 250 m2 húsnæði í Hveragerði en síðan þá hefur verið byggt 9 sinnum við upprunalegu bygginguna. Nú er svo komið að fyrirtækið er starfrækt í um 5000 m2 húsnæði, þremur húsum í Hveragerði ásamt dreifingaraðstöðu á Akureyri og Ísafirði. Starfsmannafjöldi var í upphafi 7 en nú starfa um 50 manns hjá fyrirtækinu. Kjörís var í upphafi fjölskyldufyrirtæki og nú rúmum fimmtíu árum síðar er það enn svo og í eigu sömu fjölskyldu. Fyrirtækið kemur ekki aðeins til móts við viðskiptavini sína, heldur hefur það jafnframt haldið tryggð við heimabæ sinn, Hveragerði. Þar hefur fyrirtækið stækkað og blómstrað og er nú veigamikill hluti af atvinnulífi bæjarins. Hafsteinn stofnandi Kjöríss lést árið 1993, 59 ára að aldri, og tók þá eftirlifandi eiginkona, Laufey S. Valdimarsdóttir við stjórnarformannssætinu og sinnti því til ársins 2021 eða 28 ár.  

Kjörís dreifir og selur afurðir sínar til allra landshluta en fyrirtækið hefur yfir tíu frystibíla í rekstri og rekur þar með eina öflugustu frystivörudreifingu landsins.

Árið 2018 hóf Kjörís framleiðslu á vörum fyrir færeyska markaðinn undir vörumerkinu Fóm ísur. Damfar heildsalan í Færeyjum sér um sölu og dreifingu íssins og hefur hann góða hlutdeild á Færeyska markaðnum.  

Frá upphafi hafa stjórnendur vitað að ef boðið er upp á góða vöru, góða þjónustu og vörur á réttu verði, þá fjölgar viðskiptavinum Kjörís. Til þess að uppfylla áðurnefnt þarf samviskusama og duglega starfsmenn. Með þeirra hjálp og tryggð neytenda er Kjörís leiðandi fyrirtæki í sinni grein á Íslandi í dag.


Hópmynd frá árinu 1970